Ný stjórn

Aðalfundur Tónskáldafélagsins fór fram sl. laugardag þar sem m.a. var kosin ný stjórn. Hana skipa:  

Páll Ragnar Pálsson, formaður, Bergrún Snæbjörnsdóttir og Halldór Smárason. 

Varamenn eru Þráinn Hjálmarsson, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Hlynur Aðils Vilmarsson

Fráfarandi stjórn þakkar kærlega fyrir traust og gott samstarf á undanförnum átta árum og óskar nýrri stjórn velfarnaðar í öllum sínum störfum. 

Á fundinum fengu þrír nýjir félagar inngöngu í félagið. Það eru tónskáldin Mikael Lind, Lilja María Ásmundsdóttir og Tryggvi Þór Pétursson.

Next
Next

Neo Edu Arte