MENGI HLÝTUR HEIÐURSVERÐLAUN NORRÆNA TÓNSKÁLDARÁÐSINS

Tónleikastaðurinn Mengi hlaut Heiðursverðlaun Norræna tónskáldaráðsins
sem afhent voru í Ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni. Þórunn Gréta
Sigurðardóttir, formaður TÍ, afhenti
tónlistarfólkinu Ólöfu Arnalds, meðstofnanda, og Skúla Sverrissyni,
listrænum stjórnanda verðlaunin við mikinn fögnuð viðstaddra.

Í ræðu sinni stiklaði Þórunn Gréta á stóru yfir árangurinn af
óhagnaðardrifinni starfsemi Mengis sem fyllir bráðum tíu ár, en
staðurinn hefur frá stofnun árið 2013 haldið ríflega 2000 tónlistarviðburði þar sem
stærstur hluti innkomunnar hefur runnið beint til listamanna. Einnig kom
Þórunn Gréta inn á að margar nýjar hugmyndir og tónverk sem fæddust í
Mengi hefðu í framhaldinu fengið mikla viðurkenningu hér heima og á
alþjóðavettvangi, sem hefur gefið listamönnunum enn frekara færi á að
hafa atvinnu af sinni list.

Skúli Sverrisson, listrænn stjórnandi Mengis, Ólöf Arnalds, einn stofnenda og Julie Runge.

Previous
Previous

Neo Edu Arte

Next
Next

Norrænir Músíkdagar